image description

Fyrirtækjaþjónusta

Á starfsárinu voru heimsóknir í fyrirtæki alls 32 sem er það minnsta sem verið hefur í fjölmörg ár.

Fyrirtækjaþjónustan hefur skapað sér ákveðinn sess hjá IÐUNNI. Í henni felst að náms- og starfsráðgjafi og sviðstjóri heimsækja fyrirtæki. Þar er farið yfir námsframboð IÐUNNAR, boðið upp á sérsniðin námskeið, raunfærnimat kynnt og boðið upp á einstaklingsviðtöl fyrir starfsfólk. Heimsóknum fækkar umtalsvert á milli ára vegna Covid-19 og sóttvarnarráðstafana í samfélaginu og fyrirtækjum. Nokkrar heimsóknir fóru fram í fjarfundi eða voru með óhefðbundu sniði og ekki skráðar hér. Málm- og véltæknisvið sker sig úr og náðist þar gott samstarf við fyrirtæki um heimsóknir. 

Ýmist eru það stjórnendur á vinnustað eða smærri hópar starfsmanna sem sitja slíkar kynningar. Þegar um fjölmenn fyrirtæki er að ræða er oft farið í fleiri en eina heimsókn, þá í ólíka deildir eða starfsstöðvar. Í lok kynningar er einstaklingum boðið að skrá sig í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa sem margir nýta sér. Niðurstaða slíkra viðtala getur verið að fara í raunfærnimat í viðkomandi faggrein, skrá sig á námskeið til að efla færni og ýmislegt fleira.

Eins og áður kom fram voru 32 fyrirtæki heimsótt á liðnu starfsári og heildarfjöldi heimsókna er kominn í 1082. Fáein fyrirtæki hafa verið heimsótt oftar en einu sinni. 

Allar frekari upplýsingar um fyrirtækjaþjónustuna má finna á vef IÐUNNAR.

 

Fræðslustyrkir | Símenntun (tölfræði)