IÐAN fræðslusetur
IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum og matvæla- og veitingagreinum. Hlutverk IÐUNNAR er að sjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni eftir því sem þörf krefur.
Áhersla er lögð á að bregðast skjótt við þörfum iðnaðarins fyrir nýja þekkingu. Með öflugri símenntun móta einstaklingar starfsþróun sína eftir kröfum atvinnulífsins og með þeim hætti verður þekking þeirra verðmætari bæði fyrir þá sjálfa og samfélagið í heild. IÐAN býður fyrirtækjum og einstaklingum markviss tækifæri og lausnir í símenntun.
Á vegum IÐUNNAR fer fram greining á þörfum fyrirtækja fyrir þekkingu. Þjálfun og þekkingu er miðlað með hliðsjón af því sem hentar aðstæðum og þörfum hvers og eins, hvort sem um er að ræða kennslu í skólastofu, þjálfun á vinnustað eða einstaklingsbundna leiðsögn.
Á síðasta starfsári voru ársverk hjá IÐUNNI 23.7. Venju samkvæmt var unnið með markvissa símenntun starfsfólks og sérstök áhersla lögð á stafræna hæfni.
Stjórn IÐUNNAR
Stjórn IÐUNNAR fundaði samtals níu sinnum á starfsárinu. Framkvæmdastjórn stjórnar fundaði samtals 18 sinnum á milli stjórnarfunda. Framkvæmdastjórn skipuðu þau Finnbjörn Hermannsson, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, Georg Páll Skúlason, Eyjólfur Bjarnason auk framkvæmdastjóra og fjármálastjóra.
Markaðs- og kynningarmál
Síðasta starfsár var um margt sérstakt eins og árið þar á undan. Haustönnin einkenndist mjög af sóttvarnaraðgerðum og viðbrögðum við þeim á hverjum tíma en vorönnin var mun líkari því sem gerist í hefðbundnu kennsluári.
IÐAN í tölum
Á síðasta starfsári voru haldin alls 298 námskeið sem eru nokkuð færri námskeið en undanfarin starfsár.